Múr
Lengra, ég týni mér Rænulaus í algleymi Grafkyrr á hafsbotni En birtan berst niður til mín Flýt ofar og sný mér við Í uppstreymi sem ber mig upp að ljósinu Svíf hærra en skýin grá Finn sólina, ég faðma hana og fuðra upp
Submitted by SerpentEve — Jun 17, 2026
Augun opin, sé ég mig? Úrelt, þröngsýn hugmynd lífsins liðin Fékk mínu framgengt Blasa við mér stórvirki Hlaðin veröld, kuldi stálsins bítur Sjáðu múrinn Ævafornar steinsúlur strjúka himinhvolf Gata ský Baða örmum, teygi mig En virkið hverfur Gríp í tómt Fæ ég inngöngu? Er ég verðugur? Þú færð ekki neitt Þú ert ekkert Himnar horfnir, þrumuský Máninn glottir, holdið frýs Sólin dáin, dögun flýr Ógurlegur múrinn rís
Submitted by Nargaroth — Jun 18, 2026
Stígur af himnum óskiljanleg vera Ber feigð í fjöðrum sér Þverrifur gapa, ótal glyrnur okkur eygja Loforð um betri tíð Múgurinn bætir sitt ráð Gefur sig æðri mætti á vald Augljóst hvað tekur við Bið Blindan mér veitir sjón Frelsar mig Prísund Orðsins mín harmabót Frelsari Skrúðganga í nafni verndarengils dauðans Gleðiefni drottnarans Óhlýðinn lýður syrgir brotna drauma Vægðarlaus járnkrumlan kreppt Bið Blindan mér veitir sjón Frelsar mig Prísund Orðsins mín harmabót Frelsari Blindan mér veitir sjón Frelsar mig Prísund Orðsins mín harmabót Frelsari
Submitted by SerpentEve — Jun 17, 2026
Þú dirfist horfa? Beina augum að mér? Já, bíddu bara Sjáðu til Sjá mig Sjá þig Sjá Ég sé hinn rétta veg Bít inn að kjarna Og sé að ég er einn Aleinn Ríf úr mér augun, gleypi tunguna Tjaldi veruleikans ég bægi frá Sjá hvernig sjóndeildarhringurinn stækkar Heimurinn hringsnýst Og heyrið himinhvelfinguna umturnast Hliðin opnast fyrir mér Sé hvernig sjóndeildarhringurinn og skýjafestingin renna saman Ég heyri himinhvelfinguna liðast í sundur og endurraða sér Í vitrun hugarfóstrið endurfætt Allt stendur í stað Ég leita að mér Og ég leita að þér Finn mig í speglinum Þar stend ég hjá þér Þú ert í speglinum og stendur hjá Hjá mér
Submitted by Nargaroth — Jun 18, 2026
Rísið, söfnuður Iðrist og hefjið upp raustina Syngið Í sálmi sameinuð Sálir einróma, tómið glymur Upphafinn Limlestur Krossfestur Ég predika Ég opna munninn þegar þjáningin venst Orðin brenglast og hugurinn með Lygavefur Eilíf messa Upphafinn Limlestur Krossfestur Ég predika
Submitted by Nargaroth — Jun 18, 2026
Á tímum eymdar og volæðis Sker ég skilvit á púls Liggur leiðin niður á við? Blindur tekst ég á loft Slit Svipan smellur, beinin brýt Geldan teymi skrílinn Andlit dregin úr leðjunni Himingjarðir nú gríp Heiminn slít Uppleystur Heimsslit Blæðir út Jörðin skelfur Leysumst upp Myrkrið gleypir Gefumst upp Tilvist þrýtur Taki sleppt Dómsdagsspáin Rætt Hamarinn munda Reiði til höggs Ég heiminn mölva Og huginn með Mín heimsslit
Submitted by SerpentEve — Jun 17, 2026
Ég er tóm Býð dauðadóm Umlýk allt sem er Stöðugur Óhreyfanlegur tróna Ég er allt Nú dregur að Ég er allt Lífsblóð þitt, tilgangur, þú Lítur í átt að mér Rétti út opna arma Dreg úr þér viljann Í hyldýpið sekkur Ég er allt Vonleysi Ég er allt Ég fæði þig, næri þig, þú Gefstu upp, slepptu, drukknaðu Gefstu upp, slepptu, drukknaðu Gefstu upp, slepptu, drukknaðu Held fast, vakna, spyrni mér frá Ég finn mér leið að himninum Brýt hugarmúrinn máttugan Og held áfram Ég fer án mín Losna undan sjálfum mér Eilíf ró Loks dey
Submitted by SerpentEve — Jun 17, 2026